Tengslanet milli kvenna er frábær vetvangur fyrir unga hönnuði eins og mig. Í gegnum tengslanetið get ég bæði látið vita af mér og kynnt það sem ég er að fást við samhliða því að hafa möguleika á að leita ráða hjá mér lífsreyndari konum. Tengslanetið sé ég sem reynslubolta sem ég get leitað til ef ég er óviss um atriði sem við koma uppbyggingu starfsemi minnar. Einnig finnst mér frábært að þetta sé alþjóðlegur vefur sem býður upp á möguleika að færa kvíarnar út fyrir litlu eyjuna okkar.
Tengslanetið er frábær nýjung sem hjálpar konum að styrkja hver aðra í atvinnulífinu og komast nær markmiðum sínum.
I graduated from Iceland academy of the Arts with a BA-degree in fashion design, spring 2007. I've been designing for Garmur, which is my own clothing line since summer 2006. Garmur clothing is sold in the store Verslunin Herðubreið at Barónsstígur 27, 101 Reykjavík.
Ég útskrifaðist með BA-gráðu í fatahönnun vorið 2007 frá Listaháskóla Íslands.
Ég hef hannað undir nafninu Garmur frá því sumarið 2006. Garmur er til sölu í Versluninni Herðubreið, Barónsstíg 27, 101 Reykjavík.
Áður en húsnæðinu að Barónsstíg 27 var breytt í teiknistofu, á hátindi góðærisins 2006, hafði margvísleg starfsemi átt þar heimili, allt frá herrafataverslun til verslunar með kynlífshjálpartæki. En nú er "risið" sem arkitektastofan fékk í veganesti byrjað að hníga vegna efnahagshrunsins.
Skapa & Skerpa arkitektar hyggjast því bíða kreppuna af sér í vari, í kjallara húsnæðis síns, en opna Verslunina Herðubreið á jarðhæð, í samvinnu við Bryndísi Sveinbjörnsdóttur fatahönnuð.
Í versluninni verður til sölu margs konar áhugaverður varningur, svo sem íslensk fatahönnun fyrir bæði börn og fullorðna, skart og fylgihlutir,rabbabarakaramella beint frá býli, myndlist, tónlist og bækur.
Verslunin Herðubreið opnar laugardaginn 29. nóvember kl. 13.
Allir hjartanlega velkomnir.