Hnattrænir Símafundir og Viðtöl
Heim / Hnattrænir Símafundir og Viðtöl

Hnattrænn hópsímafundur er hópsamtal kvenna á Tengjumst.is sem gefur konum m.a. tækifæri á að;
- Tengjast konum persónulegri böndum
- Ná frekari viðskiptatengingum
- Verða sýnilegri
- Stækka tengslanetið
- Víkka sjóndeildarhringinn
- Hlusta á reynslusögur og læra af þeim
- Segja frá sinni reynslusögu og leyfa annari konu að læra af þinni reynslu.
Er þetta ekki eitthvað voða flókið?
Nei, akkúrat ekki, það er einfalt að taka þátt í hnattrænu hópsímtali.
Allt sem þú þarft er að vera með SKYPE á tölvunni þinni og vera með heyrnatól og míkrafón tengda við tölvuna. Smelltu hér til að nálgast SKYPE hugbúnaðinn .
- Fyrir fundi þarft þú að senda inn SKYPE nafnið þitt og skrá sig til þátttöku
- Vera tilbúin á tilsettum tíma þegar við hringjum í þig og tengjum allar þátttakendur saman
- Við áætlum að spjallið taki 20 mínútur
Upptaka á spjalli
Hluti af símtölunum verður tekinn upp og hægt að nálgast hér á síðunni. Eingöngu skráðar konur á Tengjumst.is geta nálgast þessar upptökur.
Viðtöl:
Snjöll leið til að koma sínum skilaboðum enn betur á framfæri. Bjóðum konum í Gulláskrift uppá stutt og hnitmiðuð viðtöl, hvort sem er á íslensku eða ensku. Viðtölin eru tengd viðkomandi upplýsingasíðu.
Viltu taka þátt eða senda okkur fyrirspurn?
Sendu okkur línu í gegnum „Hafðu Samband“ formið okkar.
Listi yfir hnattræna símafundi