Ævintýraferðir fyrir konur
Cheryl Fleet hefur undanfarin 12 ár byggt upp fyrirtækið sitt Canyon Calling með glæsibrag. Í dag býður hún konum að taka þátt í margvíslegum spennandi ferðum út um alla heimsbyggð þ.m.t. til Íslands.
Hlustaðu á Michelle Bonn, Ambassador USA fyrir Connected-Women.com tala við Cheryl um fyrirtækið, ferðirnar, möguleikana og nýja ferðastaði en Cheryl leitar m.a. eftir konu sem hefði áhuga á að vera leiðsögumaður á ferðum hennar hér á landi. Gæti verið spennandi atvinnutækifæri fyrir íslenska athafnakonu sem langar til að gera "eitthvað öðruvísi" í eina viku yfir hásumarið.
Viltu fá birt viðtal við þig á síðunni?
Ef þú ert nú þegar í GULL áskrift, sendu okkur þá póst og við finnum tíma til að taka við þig viðtal (viðtölin tekin í gegnum SKYPE) og birta það á síðunni þinni sem og á sérstakri síðu á vefnum sérmerkt fyrir Hnattræn símtöl og viðtöl. Smelltu hér til að hafa samband og sendu okkur línu!
Ef þú ert hinsvegar með grunnskráningu, þá er það einnig ósköp einfalt, þú einfaldlega smellir þér í GULLIÐ í dag, lítið mál, ekki satt?