Fréttir

BRANDit - Komdu þér og hugmyndinni þinni á framfæri!

21. Janúar 2010 eftir Connected Team

Ertu með hugmynd, vöru eð þjónustu sem þú vilt koma á framfæri?  Ef þú gætir nýtt þér eitthvað eða allt af eftirtöldu, lestu þá áfram; Persónulegt táknmerki (logo) Professional mynd og video með kynningu Skýran fókus og framtíðarsýn á verkefninu/hugmyndinni Innsýn inní gerð viðskiptaáætlunar og markaðsáætlunar Tilbúið persónulegt kynningarefni á CD og til prentunar | lesa meira

Lausnir 2010

11. Janúar 2010 eftir Connected Team

Vilt þú byggja upp nýtt Ísland?  Afurðir þjóðfundarins 2009 eru nýtt gildismat og nýjar hugmyndir. Nú er boltinn í höndum þjóðarinnar og komið að því að innleiða breytingar. | lesa meira

Finndu Eldmóðinn - Einkaþjálfun!

03. Janúar 2010 eftir Connected Team

FINNDU ELDMÓÐINN einföld og árangursrík leið að innri eldi okkar sem skerpir fókus auðveldar forgangsröðun og í lífi og starfi. Líf þeirra og ástríða eru samstillt og hjálpa þeim að yfirstíga hindranir sem öðrum vaxa í augum. | lesa meira

Komdu í Mastermind hóp!

03. Janúar 2010 eftir Connected Team

Gerðu 2010 að þínu besta ári til þessa!  Komdu í Mastermind hóp! Connected-Women.com býður uppá þátttöku í sérlega skemmtilegum „Mastermind hópum". | lesa meira

Markmiðin þín og Mastermind hópar.

22. Desember 2009 eftir Connected Team

Mastermind hópar hjá Connected-Women.com hafa náð góðum árangri.  Fjöldi hópa kvenna út um alla landsbyggðir hittast í dag reglulega og setja sér markmið og með sameiginlegu átaki og stuðningi hópsins, ná árangri. Er ekki kominn tími fyrir þig að smella þér í Mastermind hóp? | lesa meira

Kyn og Völd - Norræn ráðstefna, Grand Hótel Reykjavík

19. November 2009 eftir Connected Team

Norræna embættismannanefndin um jafnréttismál og norræna kvenna- og kynjarannsóknarstofnunin (NIKK) bjóða til ráðstefnu um kyn og völd á Norðurlöndum á Grand Hótel Reykjavík dagana 18. - 19. nóvember 2009. Ráðstefnan er öllum opin og er þátttaka ókeypis | lesa meira

ALÞJÓÐLEG ATHAFNAVIKA HEFST EFTIR TVÆR VIKUR

03. November 2009 eftir Connected Team

Alþjóðleg athafnavika sem hefst í yfir 100 löndum eftir tæpar vikur var kynnt á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Marel á dögunum. Allir Íslendingar, einstaklingar, hópar, félagasamtök, skólar, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir geta skipulagt og skráð inn viðburði sem verða hluti af dagskrá vikunnar. Athafnavikan byggist þannig upp á nokkurs konar grasrótarfrumkvæði og atorku einstaklinga, sambærilegt við Menningarnótt þar sem allir geta skipulagt viðburði. Alþjóðleg athafnavika mun fara fram um land allt og eru landsmenn hvattir til að bretta upp ermar og koma stórum sem smáum verkefnum í framkvæmd. Connected-Women.com er einn af talsmönnum athafnavikunnar í ár! | lesa meira

Kynjabilið minnst á Íslandi

27. Október 2009 eftir Connected Team

Ísland er í 1. sæti í vísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) um jafnræði kynjanna í heiminum samkvæmt nýrri skýrslu ráðsins Global Gender Gap Report 2009, að því er segir í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. | lesa meira

Hlutfall karla og kvenna verði jafnt

26. Október 2009 eftir Connected Team

Samkvæmt Morgunblaðinu í dag hefur starfshópur sem Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra skipaði í mars sl. til að meta leiðir og koma með tillögur um aðgerðir til að jafna stöðu kynjanna í sveitarstjórnum hefur skilað áliti. | lesa meira

Íslenskar hugvitskonur fá viðurkenningu EU WIIN

16. Október 2009 eftir Connected Team

Hugvitskonur frá allri Evrópu hittust á dögunum í Helsinki, Finnlandi þar sem haldin var sérstök viðurkenningarhátíð á vegum samtakanna EU WIIN.  Sjö íslenskar hugvitskonur fengu viðurkenningu á hátíðinni þar af fékk hugvitskonan í tengslaneti Connected-Women.com Guðrún Guðrúnardóttir sérstök verðlaun fyrir gifstappa sína. | lesa meira

Auglýsing