Notum sumarið 2008 til orkufyllingar.

25. Maí 2008 eftir Rúna Magnúsdóttir

Þegar sumarið er á næsta leiti, er algangt að setja allar framkvæmdir á "bið" stöðu.  Einhverra hluta vegna þá leyfum við okkur að slaka á kröfunum um framsækni, skipulagningu, sjálfseflingu t.d. með að sækja okkur frekari þekkingu.

Allt umhverfið fer í nýjan búning. Nú á að grilla, vera í garðinum eða sumarbústaðnum eða jafnvel á báðum stöðum. 

Það er yndislegt að hafa tækifæri til að njóta sumarsins, eyða löngum sumarnóttum jafnvel  í göngutúrum úti í náttúrunni.  Það jafnast ekkert á við að komast út frá venjubundnum vinnusvæði, nýta orku náttúruinnar til að virkja þig og efla.

Tengjumst.is hvetur  þig til að nota sumarið 2008 að skoða framtíðarsýn þína. 

Skoðaðu markmiðin þín;

  • Hvar stendur þú í dag?
  • Hvað viltu vera búin að framkvæma í lok sumars?
  • Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að framkvæma þínar áætlanir?

Hefur þú áhuga á að vinna frekar að markmiðum þínum á komandi misserum? 
Viltu aðstoð? Hafðu samband - Smelltu hér!

Álit notenda

( SKRIFAðU þITT áLIT )

    Skrifaðu þitt álit


    Vinsamlegast innskráðu eða nýskráðu þig til þess að skrifa álit.
    Auglýsing