ALÞJÓÐLEG ATHAFNAVIKA HEFST EFTIR TVÆR VIKUR

03. November 2009 eftir Connected Team

Alþjóðleg athafnavika sem hefst í yfir 100 löndum eftir tæpar vikur var kynnt á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Marel á dögunum. Allir Íslendingar, einstaklingar, hópar, félagasamtök, skólar, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir geta skipulagt og skráð inn viðburði sem verða hluti af dagskrá vikunnar. Athafnavikan byggist þannig upp á nokkurs konar grasrótarfrumkvæði og atorku einstaklinga, sambærilegt við Menningarnótt þar sem allir geta skipulagt viðburði. Alþjóðleg athafnavika mun fara fram um land allt og eru landsmenn hvattir til að bretta upp ermar og koma stórum sem smáum verkefnum í framkvæmd.

Connected-Women.com er einn af talsmönnum athafnavikunnar í ár!

YFIR 50 VIÐBURÐIR SKIPULAGÐIR


Um allt land eru einstaklingar, skólar, fyrirtæki og félagasamtök að vinna hörðum höndum að því að skipuleggja stóra sem smáa viðburði í Alþjóðlegu athafnavikunni og virkja þannig með sér þjóðina til jákvæðra verka.

Nú þegar eru vitað af yfir 50 viðburðum sem er verið að vinna í að skipuleggja og verða upplýsingar um þá birtar jafnóðum og upplýsingar berast á dagskrársíðu Athafnavikunnar.

Meðal viðburða sem eru í undirbúningi eru Athafnateygjan, Snilldarlausnir, Nýsköpunarmessa Háskóla Íslands, fjölbreytt viðburðardagskrá Háskólans í Reykjavík, Hugmyndsmiðja Klaksins, H-dagurinn - dagur hugmynda á vegum Uppsprettu.is, Hönnunarmiðstöðvar, Hugmyndahúss háskólanna og Innovit, viðburður á vegum Skoppu og Skrítlu, fjölmargir hvatningarviðburðir á Höfn í Hornafirði, glæsilegir viðburðir á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og svo mætti áfram telja.

Nánar verður sagt frá viðburðum í fréttabréfi Athafnavikunnar næstu daga og vikur, fyrir allar nánari upplýsingar smellið hér!

Álit notenda

( SKRIFAðU þITT áLIT )

    Skrifaðu þitt álit


    Vinsamlegast innskráðu eða nýskráðu þig til þess að skrifa álit.
    Auglýsing